Hvað er DCP?
Í kvikmyndaheiminum heyrist oft hugtakið DCP þegar rætt er um að koma kvikmynd á hvíta tjaldið. En hvað er DCP í raun og veru – og hvers vegna skiptir það svona miklu máli fyrir kvikmyndasýningar? Í kvikmyndaheiminum heyrist oft hugtakið DCP þegar rætt er um að koma kvikmynd á hvíta tjaldið. En hvað er DCP í raun og veru – og hvers vegna skiptir það svona miklu máli fyrir kvikmyndasýningar? Skilgreining DCP (Digital Cinema Package) er safn stafrænna skráa sem innihalda alla þá þætti sem þarf til að sýna kvikmynd stafrænt í kvikmyndahúsi: Mynd í 2K eða 4K upplausn. Fjölrása hljóð (5.1, 7.1 eða Atmos). Skjátexta fyrir þýðingar og/eða aðgengi. Lýsigögn (aspect ratio, rammatíðni, titil, KDM-lykla o.fl.). Markmiðið er að tryggja að kvikmyndin birtist á tjaldinu með þeim gæðum og útliti sem kvikmyndagerðarfólkið ætlaði sér. Uppruni DCP Áður en DCP kom til sögunnar var 35 mm filma eina alþjóðlega dreifingarformið. Þegar stafrænar sýningar fóru að ryðja sér til rúms þurfti nýjan, staðlaðan grunn sem tryggði að hægt væri að spila kvikmynd á öllum vottuðum stafrænum sýningarvélum, óháð framleiðanda. Því var Digital Cinema Initiatives (DCI) stofnað árið 2002 af helstu Hollywood-stúdíóunum. Árið 2005 birtist svo fyrsta útgáfa DCP í formi Interop DCP. Það var þó ekki formlegur staðall heldur bráðabirgðalausn – samkomulag milli framleiðenda til að hefja stafrænar kvikmyndasýningar á samræmdan hátt. Interop var notað víða á sínum tíma, en þar sem það byggði ekki á alþjóðlegum stöðlum var það alltaf hugsað sem tímabundið skref á leiðinni að framtíðarlausninni, SMPTE DCP, sem síðar tók alfarið við. Interop og SMPTE – þróunin Fyrstu árin var notast við svokallað Interop DCP. Það var byggt á XML-skjölum og gerði kvikmyndahúsum kleift að hefja stafrænar sýningar, en var aldrei formlegur staðall. Interop hafði ýmsar takmarkanir, sérstaklega varðandi texta og stuðning við nýja tækni. Síðar tók við SMPTE DCP, byggt á alþjóðlega viðurkenndum stöðlum frá Society of Motion Picture and Television Engineers (SMPTE). Í dag er SMPTE DCP hið viðurkennda og framtíðarmiðaða snið. Kostir SMPTE fram yfir Interop: Dolby Atmos: Krefst SMPTE DCP – ekki stutt í Interop. Aðgengismál: Stuðningur við staðlaða texta fyrir heyrnarskerta og lýsingu fyrir sjónskerta. Alþjóðlegir staðlar: Byggir á ISO-normum og tryggir meiri samhæfi til framtíðar. Stuðningur við nýja tækni: HFR (High Frame Rate), 4K 3D og aðrar nýjungar virka með SMPTE. Í dag má segja að Interop sé orðið barn síns tíma og nýjar kvikmyndir eru ekki lengur settar á Interop DCP þar sem framtíðin er alfarið SMPTE. Hvað er SMPTE? SMPTE stendur fyrir Society of Motion Picture and Television Engineers. Félagið var stofnað árið 1916 undir nafninu Society of Motion Picture Engineers (SMPE). Árið 1950 var orðið Television bætt við, þar sem sjónvarpstæknin var orðin stór hluti af iðnaðinum, og hefur félagið síðan heitið SMPTE. SMPTE eru alþjóðleg samtök sem í yfir 100 ár hafa mótað staðla fyrir kvikmyndir, sjónvarp og stafræna miðlun. Samtökin hafa m.a. skilgreint: Rammatíðnir (fps) í kvikmyndum og sjónvarpi. Litastaðla eins og Rec.709 (HDTV) og Rec.2020 (4K/8K). Skráasnið eins og MXF, sem er mikið notað í sjónvarpi. Og ekki síst SMPTE DCP, sem tryggir að stafrænar kvikmyndir spilist eins í öllum kvikmyndahúsum heims. Þannig má segja að SMPTE sé eins konar „staðlaráð“ fyrir allan kvikmynda- og fjölmiðlageirann – og lykilatriði í því að gera stafræna kvikmyndasýningu að alþjóðlegum staðli. DCI compliant – hvað þýðir það? Í tengslum við DCP heyrist oft hugtakið „DCI compliant“. Það þýðir að DCP uppfylli allar tæknilegar kröfur sem Digital Cinema Initiatives (DCI) skilgreindi, m.a. um upplausn, litadýpt, þjöppun, hljóðform, gagnauppbyggingu og öryggi. Important: er að hafa í huga að ekki öll DCP eru sjálfkrafa DCI compliant. Það er hægt að búa til DCP með ýmsum opnum tólum, en ef pakkinn uppfyllir ekki staðalinn að fullu getur hann: Virkað í einu kvikmyndahúsi en klikkað í öðru. Sýnt rangt litagildi, hlutföll eða…