Að afhenda screenera

Lærðu hvers vegna það er lykilatriði að vatnsmerkja screenera í kvikmyndagerð. Einfalt skref sem verndar verk þitt gegn leka og styrkir fagmennsku. Persónuleg vatnsmerki á screenerum eru einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að vernda kvikmyndir gegn óæskilegum lekanum. Í kvikmyndagerð er mikil vinna, fjármagn og tilfinningalegt álag lagt í hvert einasta verk. Áður en efni fer í almennar sýningar þurfa framleiðendur samt oftar en ekki að sýna útvöldu fólki efnið. Þetta útvalda fólk getur verið fjárfestar, samstarfsaðilar, dreifingaraðilar, hátíðir eða gagnrýnendur. Á þessum stigi er sérstaklega mikilvægt að gæta fyllsta öryggis, því ein lítil mistök geta valdið óbætanlegu tjóni. Þetta er tímapunkturinn þar sem gott er að staldra við og gera hlutina rétt. Ekki senda frá þér efni sem ekki er hægt að rekja beint til þess sem fær það afhent. Þó það hljómi eins og óþarfa „vesen“ þá er alls ekki vitlaust að exporta sérstaklega út screener sem er vatnsmerktur nafni þess sem fær hann afhentan. Við verðum að muna: á meðan efni er ekki komið í almenna dreifingu þá er það viðkvæmasta eign framleiðandans. Ef efnið lekur á netið eða fer í dreifingu á röngum stað getur það haft bein áhrif á tekjur, orðspor og jafnvel framtíðarmöguleika verkefnisins. Af hverju vatnsmerki skipta máli Vatnsmerktir screenerar eru einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að draga úr hættu. Með því að hafa nafn viðtakanda sýnilegt í myndinni er erfitt fyrir viðkomandi að dreifa efni áfram án þess að það sjáist. Það er líka sterkur fælingarmáttur – flestir hugsa sig tvisvar um áður en þeir dreifa efninu áfram ef nafn þeirra er í screenernum. Bestu vinnubrögðin sem allir ættu að tileinka sér núna Ekki senda ómerkt efni frá þér. Gakktu úr skugga um að hver screener sé merktur nafni og/eða netfangi þess sem fær hann. Skráðu hjá þér hverjir fá afrit og hvenær. Þetta snýst um ábyrgð Það er kannski þægilegra að henda út einum Dropbox-hlekk á marga aðila, en það getur kostað ótrúlega mikið ef eitthvað fer úrskeiðis. Með því að setja upp vatnsmerkt eintak fyrir hvern og einn ertu að sýna fagmennsku og vernda verkið þitt – og í raun allt teymið sem stendur á bak við það. Og svo má auðvitað alltaf spyrja sig: er það í raun nauðsynlegt að senda viðkomandi eintak? Stundum er betra að fá hann einfaldlega til þín og láta hann horfa á myndina á staðnum. Ég myndi segja að ef þú ert að deila screener í dag og hann er ekki persónulega vatnsmerktur, þá ertu að taka óþarfa áhættu. Það er ekki flókið að breyta þessu – og það getur bjargað þér frá miklum vandræðum seinna.